Reykjavík Pride

Hinsegin dagar í Reykjavík eru sjálfstæð sjálfboðaliðasamtök sem hafa það að markmiði að skipuleggja stærstu hinsegin menningarhátíð Íslands sem haldin er í ágúst ár hvert. Félagið var stofnað sumarið 2000 í kjölfar vel heppnaðrar hinsegin helgi í lok júní 1999 þar sem 1500 manns mættu, öllum að óvörum. Síðan þá hefur hátíðin vaxið með miklum hraða og starfsemi félagsins sömuleiðis. Í dag eru Hinsegin dagar í Reykjavík sex daga menningarhátíð og dagskráin á laugardeginum, með gleðigöngu og tónleikum á Arnarhóli, er þriðja stærsta útihátíðin á landinu.