Fræðslu- og stuðningssamtök hinsegin fólks á landsbyggðinni

HIN Hinsegin Norðurland eru samtök sem beita sér fyrir réttindum og sýnileika hinsegin fólks á landsbyggðinni, einkum á Norðurlandi. Þau voru stofnuð árið 2011. Samtökin standa reglulega fyrir fræðsluviðburðum og sinna félagsstarfi fyrir hinsegin fólk á Akureyri. Þau hafa einnig staðið fyrir gleðigöngu á Akureyri og dragkeppnum.