Kynvitund
Kynvitund segir til um hvernig fólk vill lifa og vera í sínu kyni. Kynvitund vísar ekki til kynfæra, líffræði eða útlits heldur upplifunar fólks af eigin kyni. Allir hafa kynvitund því allir upplifa kyn sitt á einhvern hátt.
Fæstir þurfa nokkru sinni að hugsa út í kynvitund sína því hún samræmist því kyni sem þeim var úthlutað við fæðingu. Flestir eru sem sagt sískynja og hafa aldrei þurft að efast um að það kyn sem ljósmóðirin tilkynnti þegar þeir fæddust sé þeirra rétta kyn. Aðrir efast eða eru fullvissir um að það kyn sem ljósmóðirin gaf upp sé ekki þeirra rétta kyn og eru því trans.
Kynvitund getur verið margs konar. Sumt fólk upplifir sig sem karla, aðrir sem konur og sumir upplifa sig sem blöndu af hvoru tveggja og eru þá kynsegin. Enn aðrir upplifa sig hvorki sem konu né karl. Sumir fara í aðgerðir eða taka inn hormóna til að breyta líkama sínum og útliti og samræma það þannig við kynvitund sína. Það er kallað að fara í kynleiðréttingu. Sumir vilja ekki fara í slíkar aðgerðir.
Gender identity