Samtök hinsegin fólks á Íslandi

Samtökin ’78 eru elsti félagsskapur hinsegin fólks sem enn er starfandi. Þau voru stofnuð árið 1978 sem vettvangur fyrir félagslíf og réttindabaráttu samkynhneigðra. Hörður Torfason var helsta driffjöðrin í stofnun félagsins en fyrsti formaðurinn var Guðni Baldursson. Samkynhneigðir karlar voru ráðandi í starfinu framan af en nokkrar konur gengu þó til liðs við samtökin á upphafsárunum. Fyrsta konan til að gegna formennsku var Lana Kolbrún Eddudóttir (1989–1990 og 1993–1994) og smám saman urðu raddir og hagsmunir kvenna meira ráðandi innan samtakanna.

Það var þó ekki fyrr en undir lok 20. aldar sem félagsmenn Samtakanna ’78 fóru að huga að baráttu annarra hópa en samkynhneigðra. Árið 1993 sagði hópur félaga sig úr samtökunum þegar aðalfundur felldi þá tillögu að veita tvíkynhneigðu fólki inngöngu í félagið. Hópurinn stofnaði sín eigin samtök, Félagið – réttindafélag tvíkynhneigðra og samkynhneigðra, en sá félagsskapur lognaðist út af þegar Samtökin ákváðu loks að hleypa tvíkynhneigðu fólki inn í félagið árið 2007. Árið 2010 samþykkti aðalfundur að veita trans fólki aðild að félaginu og við það tækifæri var heiti þess breytt í Samtökin ’78, félag hinsegin fólks á Íslandi til að það gæti rúmað sístækkandi flóru kynhneigða og kynvitunda án þess að þurfa í sífellu að breyta um nafn. Í núgildandi lögum félagsins er markmið þess sagt vera að hinsegin fólk verði sýnilegt og viðurkennt og njóti fyllstu réttinda í íslensku samfélagi. Hinsegin fólk er skilgreint sem meðal annars lesbíur, hommar, tvíkynhneigðir, eikynhneigðir, pankynhneigðir, intersex fólk og trans fólk.

Samtökin ’78 eru í dag stærstu og þekktustu félagasamtök hinsegin fólks á Íslandi. Félagið starfar á grundvelli einstaklingsaðildar en einnig eiga fjölmörg félög aðild að Samtökunum ’78 sem þá gegna hlutverki regnhlífarsamtaka. Þessi félög eru til að mynda Trans Ísland, Hinsegin dagar, Hinsegin kórinn, BDSM á Íslandi og fleiri.

Verkefni Samtakanna ’78 eru margvísleg: réttindabarátta, hagsmunagæsla, fræðsla, ráðgjöf, félagsstarf og margt fleira. Þar getur hinsegin fólk og aðstandendur þeirra fengið ókeypis ráðgjöf, sótt fundi hjá fjölbreyttum starfshópum og fengið aðgang að félagslegum vettvangi hinsegin fólks.



Samtökin ’78


Heimilisfang

Suðurgötu 3

101 Reykjavík